Lýsing
Íslenskt lambaskin | Gólfteppi
120 × 180 cm
Dvali er hlýlegt og fallegt gólfteppi, fullkomið í bústaðinn, stofuna eða svefnherbergið.
DVALI
Frá því að Ísland var numið árið 874 hefur sauðkindin gengið frjáls í hverskyns veðri og vindum. Ull kindarinnar hefur hagað sig að íslenskum aðstæðum og er íslenskt lambaskinn því sérhannað fyrir þær. Lambaskinns vörur Felds eru lífniðurbrjótanlegar og framleiddar í sátt við náttúruna.
Vörulínan DVALI er alfarið hönnuð út frá eiginleikum og fallegri áferð íslenska lambaskinnsins. Það er samsett úr togi og þeli. Togið eru lengri hár sem mynda ytra lag ullarinnar, gróf og endingargóð. Þelið er svo þétt og mjúkt innra lag sem veitir ullinni mikla einangrun.
Athugið: Teppin eru fáanleg í mismunandi litum og mynstrum. Við mælum eindregið með því að heimsækja verslun okkar til að velja þitt eintak eða hafir samband við feldur@feldur.is til að fá upplýsingar um litavalið í boði áður en að þú kaupir þessa vöru.