Beint í efni

LAMBSKIN

Frá landnámi hefur hlýja, mjúka og sterka lambaskinnið haldið okkur á lífi. Íslenskt sauðfé gengur frjálst um villta náttúru landsins og hefur þróast með veðri og vindum að þessu fullkomna hráefni. Lambaskinns vörurnar frá Feldi eru framleiddar á ábyrgann hátt, þær eru sjálfbærar og gerðar í samlyndi við náttúru.

SELSKIN

Selskinn er auðþekkjanlegt á einstakri áferð þess og fjölbreytilegu munstrinu. Selskinn er einstaklega endingargott og veitir skjól gegn veðri og vindum.

Selskinnið hjá Feldi er framleitt úr Vöðusel, veiddum af innúítum í Grænlandi eftir helstu umhverfisstöðlum og á löglegan hátt. Við verslum skinnið einungis frá viðurkenndum söluaðilum og eru þau hágæða vottuð skinn.

SMÁÚLFS FELDUR

Feldur smáúlfsins er fágaður og flottur. Mikil dýpt er í hráefninu vegna andstæðna í háralitunum. Strúktúr þeirra minnir á íslenska lambaskinnið þar sem þykkt og mjúkt innra háralag styður við fögur, löng hár sem verða ýmisst brún eða svört.

Smáúlfurinn hjá okkur í Feldi kemur einungis frá viðurkenndum söluaðilum og er hágæða vottað skinn.

REFA SKINN

Refa skinn er þykkur, glansandi og einstaklega mjúkur feldur. Vörur framleidda úr ref eru því sérstaklega glæsilegar. Refaskinn er fáanlegt í yfir 20 mismunandi náttúrulegum lita afrbrigðum, allt frá rauðum og brúnum lita tónum  yfir í svarta, gráa og hvíta tóna.

Vörurnar okkar eru einungis framleiddar úr hágæða, vottuðu refaskinni, verslaðar af viðurkenndum söluaðilum.

TÍBESKT LAMBSKINN

Tíbeskt lambskinn er þekkt fyrir einstaklega langa, silkimjúka og krullaða ull sem gerir vörur úr því einstakar og mjög fallegar.

Lambaskinnið hjá okkur í Feldi koma frá villtum kindum sem ganga frjálsar um sveitir Tíbet.

MINKA SKINN

Minkurinn skartar einstaklega mjúku, fíngerðu en endingargóðu skinni. Við hjá Feldi bjóðum breitt úrval pelsa og jakka í alskonar litum úr fjölbreyttum minkategundum.

Minkaskinns vörurnar hjá okkur eru einungis framleiddar úr hágæða, vottuðum feldi, sem verslaður er af viðurkenndum söluaðilunum.

Hvar getur þú nálgast vörurnar frá okkur?

Við erum með æðislega verslun á þeim stað í miðbænum sem enn er hægt að fá ókeypis bílastæði. Á Snorrabraut 56 getur þú verslað allar okkar vörur! Eins er hægt að nálgast vinsælar vörur frá okkur í völdum verslunum um allt land.

Move left
Move right
Move up
Move down
+Zoom in
-Zoom out
HomeJump left by 75%
EndJump right by 75%
Page UpJump up by 75%
Page DownJump down by 75%
  • Google
    Map data ©2025 Google
    Map data ©2025 Google